Nosotros
Klukkan
�?tvarp Modo
16.05.2008 10:37:40 / gylfi

DEAD!

Þessi síða er rosalega löngu orðin dauð! 

http://www.myspace.com/gylfibragi
http://www.myspace.com/bennfi
http://www.myspace.com/selurinn

Vinsamlegast takið þessa heimasíðu af byrjunnarsíðu.

MoDo lifir..! bara annarstaðar!

Selskapur heldur áfram í Beneventum næsta haust. :haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 21:23:15 / Benni

Það er gamann af þess.

Djövull er ég stoltur af þessum félaga mínum að negla tengdó, smat pælingin hvað hann var að hugsa rétt áður en hann nelgdi tengdó, ef dóttirin er góð í rúminu hversu góð er þá mamman? Ef dóttirin ef flott hversu flott er þá mamman? Svo gæti hann líka verið kominn með leið á kærustunni og vildi fá eitthvað svolítið öðruvísi en samt ekki allt öðruvísi og ákvað að neggla mömmu, hugsað með sér "Hvaða, hvaða kéllingin er ekki búin að vinna fyr en eftir klst. afhverju ekki að prufa víst hún er að bjóða sig svona?". Svo spyr maður sig víst að hún hætti fyr í vinnuna og kom að þeim núna hvort þeu hafi eitthvað verið að stunda þetta að viti eða hvort þetta sé eina skiptið. En ég meina ef að var þess virði að ríða tengdó og væntanlega hætta með kæró þá mundi maður taka það. Þetta blogg fækkaði örugglega möguleikum mínum á að ná mér í kvennmann en það er jú bara seinni tíma vandamál :), er ég þá farinn í bili ;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 23:21:48 / Benni

Seinustudagar

Já góðan daginn eða á ég að segja kvöldið? Allavena þá held ég klárlega að það sé komið tími á blogg frá mér.            Jæja ættla að byrja á því að stikla á stóru hvað hefur dregið á mína seinustu daga. Byrjum á vinna, svo vann ég líka eitthvað smá, og svo vann ég eitthvað þarna inná milli og vann líka eina helgi þarna já og svo fékk ég frí í einn dag og svo vann ég aftur og svo vann ég eitthvað meira og svo smá meira. Svona hefur þetta verið seinustu daga hjá mér og hef ég varla hitt vini mína nema eftir vinnu sem er svona 12 eða 12:30, er kominn með shitt leið á þessum blessuðu jólahlaðborðum sem klársat núna á laug. En þá tekur skötuveisla við á Þorláksmessu svo er ég að vinna á aðfangadag og annan jóladag, mjöglýklega á annan í jólum þar sem það er brúðkaup þá, 27.des er 600 – 800 manna pinnaveisla, og 28.des er 300 manns í kaffihlaðborð sem er í tengslum við kosninguna á  íþróttamanni ársins, svo á ég vaktina 29. og 30 des. En sem betur fer er ég í fríi 31. des og 1. jan :D. Svo verður vonandi minna að gera í Jan. En svo er það sem er framundan á nýu ári. Ætla að taka bílprófið fyrir 21. Feb. Eða fyrir 18 ára afmælið mitt. Svo er ég að fara á EM í handbolta í Noregi í Jan. :D:D:D:D og verð þar með Kellsó, Nara Búgí og Bínaranum :D:D:D sem verður bara stuð. Eftir það er ekkert meira planað. Þá er ég búinn í bili heyri í ykkur seinna ;). BENNI is out

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 00:35:51 / Seli

Taka 2, ég er ekki með kaktus uppí rassgatinu á mér

Já ég veit ég var með pirring, svo ég ætla að vera á léttari nótunum, datt inní þetta forrit þegar ég var að fara að sofa, veit ekki hvort það er svefngalsinn en mér fannst þetta fucked up fyndið :)

 

hérna er myndbandið ef þið viljið hlægja meira (persónulega elska ég gaurinn lengst til hægri)
og þeir sem eru eikkað efins þá já, þetta er allt ég, í aldanna rás

http://www.elfyourself.com/?id=1204766644


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 23:48:51 / Seli

Femi femi femi femi

Þegar ég heyrði fyrst um hugtakið feminsmi, þá fannst mér ekkert jafn sjálfsagt. Konur hefur verið mismunað frá örófi alda og þurft að sætta sig við margt slæmt. Já ími kominn á jafnræði og allt í góðu gengi. NEI GÓÐAN DAGINN.
Það er bara væl í gangi! Þótt ótrúlegt sé, horfði ég á fréttirnar um daginn.

1.  Verið að tala um að hætta með bleiku og bláu litina á spítölum, svo ekki sé gert upp á milli kynjanna. Er eitthvað að því að vera stelpa? Skammast þessir feministar sín svo mikið fyrir kynin sín að þau vilja kynskerða landið?!?

2. Beint eftir á er einhver kona snælduvitlaus yfir að Egill Helgason sé með of lítið af konum í þáttunum sínum. *News-flash* = Meiri hlutinn af mönnunum sem Egill talar við eru ráðherrar, forstjórar, rithöfundar og því miður er bara hærra hlufall af karlmönnum í þessum stöðum, hann tekur inn allar konur sem tilheyra umræðunni eins oft og hann getur. Hvað á hann að gera? Fá konur með inn, bara afþví að þær eru konur? Er það ekki dáldið kjánalegt? Á ég að segjast vera móðgaður að horfa á sex and the city afþví það sé alltof mikið af konum þar, svo ekki sé talað um hlutgervingu karla?

3. Líkleg breyting á orðinu ráðherra yfir í ráðfrú fyrir konur. Getum við ekki verið aaaaðeins meira smámunasöm? Ég tel mig vera mann sem pælir í hlutum, en ég hafði aldrei tekið sérstaklega eftir þessu herra dæmi. Silly. Segi nú bara: “What ever helps you sleep at night bitch” 

Þar sem feministar ætla að vera svona anal með þetta þá er ég að pæla í að laga nokkra hluti hjá mér. 

Sprungið dekk – Senda dömuna út að fiffa þetta, engin miskunn!! 

Pirringur á balli – Ekki brjóta nefið á hnakkanum, sparka frekar í eggjastokkana á sætu gellunni, verðum að deila byrgðum kynjanna! 

Strákaklósett – Um að gera að taka stelpurnar með, verum nú ekki að loka á kynin, pissa í kross eða bara spjalla, um að gera að nota hugmyndflugið 

Sterar – lauma smá anabólískum í drykkin hennar, vöðvar og skegg eru fyrir alla :) , gerir líka slagsmálin á böllunum áhugaverðari 

 

 

                                                 
                                                       Framtíðarsýnin?

 

ps. Ég geri mér grein fyrir muninum á feminista og öfgafeminista, en samt kommooooon


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 15:41:58 / gylfi

Hvar í andkotanum eru þeir?

Flestir velta því fyrir sér núna hvar í andskotanum Modo pakkið er niðurkomið...
Jú... við erum á lífi... bara pínu uppteknir...Þið: HA? Of uppteknir fyrir okkur... Við: Jámm það er erfitt að þurfa að blogga á hverjum degi og þurfa að vera Hip&Kúl...

Sagan af strákunum

Eitt sinn... Er strákur sem heitir Benni. Hann er Hip&Kúl. Hann er líka ógeðslega fkn góður að elda og er alltaf að gleðja dömurnar. Benni er orðinn ógeðslega frægur kokkur og rekur bestu veitingastaði í New York sem sögur fara af.


Benni


Axel er strákur. Hann er Hip&Kúl. Hann er líka rosalega súrréalískur geðklofi sem vinnur sem sálfræðingur. Hann rekur bestu sálfræðistofu heims og kemur fólk alla leið frá Kókóníu til að fá hjálp við geðkvillum á borð við tívklofageðröskun og seint sáðlát. Hann nær að vefja allar dömur sem koma inn á stofuna upp á prikið á innan við 0,32 sek. En hann hefur drepið þær allar vegna geðröskunnar sinnar.


Axel

Einn strákur að nafni Gylfi. Er Hip&Kúl. Hann er líka orðinn ógeðslega frægur tólistarmaður og fær um það bil 15 millónir dollara á dag og eina tælenska í kaupæti fyrir að vera sá sem hann er. Gylfi spilar að meðaltali 2 gigg á dag og tekur nóg af róandi inn á milli til að ofgera sig ekki. Hann á enþá sömu kærustuna og notar hana til að berja tælensku gleðikonurnar. Þau giftust líka.


Gylfi and his band

 
Modo lifir enn. Og ef þið eruð jafn Hip&Kúl gætuð þið líka orðið svona inn.


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 22:33:06 / Seli

ATENCIÓN!!!!!!!!!





NÝR SELSKAPUR!!!!!



ENDILEGA TJÁ SIG

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 00:43:10 / Benni

2-0 mínar tölur í dag og næstu viku

Já eins og stendur í fyrir sögninni þá er 2-0 mínar tölur í dag og næstu viku ástæðan fyrir því er auðveld Man.Utd. vann Chelsea 2-0 og vann Valur FH 2-0 (réttar væri að skrifa 0-2 þar sem Valur var á útvelli en það er auaatriði ;) ). Þetta þíðir að Man. Utd er komið í annaðsæti enskudeildarinnar og Valur í fyrsta sæti í Landsbankadeildinni og einn leikur eftir :D:D:D. Það er nú samt gaman að segja það að Chelsea er með -1 í markatölu og er það magnað þar sem liðið er í 6.sæti og gerið það ekki aftur fyr en í 14. sæti aftur :D. Þetta þýðir jú að Valur er kominn með aðrahöndina á bikarinn og FH hina og ræðst það allt saman í seinustu umferð sem verður spiluð næstu helgi þá mætast Valur og HK annarsvegar og FH og Víkingur hinnsvegar, Valur má tapa ef FH gerir jafntefli þá vinnur Valur á markatölu, valur má gera jafntefli ef FH gerir líka jafntefli, svo má Valur tapa ef FH tapar líka, svo á náttúrulega Valur að Vinna og þá skiptir ekki máli hvað FH gerir. Það er nú full snemmt að segja til um úrslit í Enskudeildinni þar sem sum li' eru bara búin með 6 og önnur með 7 leiki.

 

En ég ættla að segja þetta gott hjá mér í bili heyri bara í ykkur síðar ástarpungarnir mínir ;)

Benni is out


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 00:38:07 / Benni

Helgin ónýt :(

Jæja þá tókst löggunni að eyðileggja helgina ef ekki helgranar hjá fjölda fólks (þar að segja fjölda fíkniefnaneitenda) með því að leggja hald á 60 kíló af anfetamín + e-duft og e-töflur. þegar er búið að handtaka 5 menn hérna heima 2 sem sigldu skútunni 1 sem tók á móti henni og 2 bræður sem talið er að hafa sigld sjútunni hingað til lands fyrir 2 árum síðan, 3 menn hafa verið handteknir í Færeyjum, íslendingur og Dani, einn í Noregi og pari í Danmörku sem hefur verið slept. Persónulega finnst mér þetta gott hjá löggunni en vona að þeir sem voru búin að bíða eftir því að skemmta sér með þessu efni að þeir finni eitthvað annað sem sekmmtir þeim :P


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 12:49:49 / Benni

Eiður

Ég spyr nú bara fahverju Eiður fari ekki frá Barchelona? Ok, þetta er frábært lið og góð laun og allt það en hann er ekkert að fara að spila nema einhverja skíta leiki, nöfnin sem hann er að berjast við eru Messi, Ronadhinio, Henry og fleiri góðir. Afhverju ekki að fara í eitthvað lið sem hann getur spilað alla leikina t.d Westham sem hefur sýnt honum áhuga ef marka má fréttirnar. En þar sem ég er ekki Eiður Smári ættla ég ekki að ákveða þetta fyrir kallgreiið vona bara að hann nái að stimpla sig inn í þetta Katalóníu lið í stað þess að verma tréverkið því hann er stórskemmtilegurleikmaður þegar hann fær að spila

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 22:39:42 / Seli

ATENCIÓN !!!!!!

NÝR SELSKAPUR!!!!!!

 

Fann loksins músina, næst er bara að finna heilann og þá get ég gert blogg :) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.08.2007 22:25:27 / Seli

No tengo ninguna idea porqué blogging

Jahá, long time no blog. Ég veit ekki einu sinni hvað ég er að fara að segja.
Skólinn byrjaður, flest er í lagi fyrir utan Spænsku 203. Afhverju lendi ég alltaf í bekk með fólki sem kann spænsku?!? "Axel skrifaðu 10 lýsangarorð" "uuuuuuuuuuu" fokking vandræðalegt. Hættur í Sundi, reyna við kórinn á mánudaginn. Spurning er hvort ég eigi að fara í normal fötum eða franska outfitti-nu?

En já það er selskapur á leiðinni og annar með en ég finn ekki músina mína svo ég er dáldið stopp :/ kem með skárra blogg seinna  


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 13:36:24 / gylfi

Stright Way To Hell..

Sælir landsmenn, nær og fjær.

Aðal áhyggjuefnið þessa dagana er tvískipt. Þ.e.a.s. MEGAVIKA og Skólinn... Megavikan byrjaði í dag og ég afþakkaði pent að vinna í dag. Ég vinn þó alla hina dagana í vikunni, semsagt 24/6. Fæ rétt frí meðan ég er í skólanum. Mig hlakkar samt rosalega til að mæta í skólann, uppá félagslífið. En að þurfa að læra er allt annað mál. Nú er Listafélagið fyrir höndum og nógu andskoti ( afsakið orðbragðið ) mikið að gera. Ég get varla beðið eftir að fá að busalufsa þessa litlu busa. En það verður alveg unaðslegt.
En svona að öðrum málum. Ég var að spila á menningarnótt, hjá JCI húsinu. En þar mætti múgur og margmenni til að sjá kappann slá á drumburnar að þessu sinni. Þetta var band, samansett úr Hestasveitinni og var útkoman mjög góð og líktist eitthvað alternetive/electronic bulli. En síðan var ég líka að kaupa mér nýjann gítar. Keypti mér einn góðann Fender Telecaster. Hann er ýkt þéttur og góður. Og ég get varla beðið að taka fyrsta giggið með honum.
En ég hef voða fátt annað að segja. Þetta blogg átti bara að fylla upp í eymdina sem ríkti á þessari síðu. En það er komið nýtt Hip&Kúl og Selskapurinn er meira en hálfnaður. Svo að endilega spennið sætisólarnar.

Kv. Gymmpi


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.08.2007 17:08:50 / Benni

Home Sweet Home

Jæja þá er maður búinn að vera í  2 og ½ viknu fríi. Byrjaði á því að fara með foreldrunum einhvert útá land að hitta vina fólk þeirra var eini yfir 15 næsta manneskja mér í aldri var 14 ára stelpa þannig að ég skemmti mér einn í dágóðann :D:P. Eftir þessa nokkra daga far mér skuttlað í Vatnaskóginn góða :D:D:D þar var ´g matargat (matvinnungur) sá um uppvaskið var að skipa lilltum strákum fyrir :D :klikk: eftir þessa yndælu viku var komið að mér að vera barn í flokk eða unglingi í flokk já það var kominn unglingaflokkur var búinn að undirbúa mig andlega sem og líkamlega í að fara útí eitt mesta hözzl sem sögur mundu fara af í Vatnaskógi... en allt kom fyrir ekki einungis 3 stelpur komu í flokkinn og eru þær allar ’92 módel og tel ég það ofungt á þessum aldri  ;) :P. Þannig að þá gat ég einbeitt mér betur af öðrum greinum svosem frjálsum og fótbolta og þess má gamans til geta að ég vann bæði frjálsíþróttabikarinn og fótboltabikarinn með Gylfa, Þorbergi, Stebbi og Magga lillta 2 lið voru í keppninni og unnum við þennan eina leik. Ég kom heim á miðvikudegi svona um 1-2 fór út að eta með nokkrum starfsmönnum í smá verslunar leiðangur, kom heim beint á Pizza Hut með Vattnaskógar krökkunum og eftir það hópuðumst við saman á The Simpsons The Movie sem er fín er mjög svipað til eins stórs Simpsons þáttar. Fór svo að vinna á fimmtudagskvölið og hef ekki stoppað í vinnunni síðan er í fríi á miðvikudaginn og fer svo að vinna fimmtud., föstud. og laugard. Ættla ekki að hafa þetta lengra í bil.                                                                                                 Heyri bara í ykkur seinna ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 17:47:47 / gylfi

Þegiðu þarna foringjalúði...

Jájá.. Ég er staddur á yndislegasta stað jarðarinnar, hér skín alltaf sólin (nema í dag) og hér ríkir alltaf innri friður og ró.
    Já sumir halda núna að ég sé staddur í Vatikaninu... en nei... Ég er staddur í Vatnaskógi. Starfa hér sem foringi á 7.borði og með stráka, stærri en ég og gætu léttlilega unnið mig í sjómann. En af undarlegum ástæðum, virða þeir mig eins og móður sína vegna stöðu sinnar. Ef ég væri bara einhver strákur útí bæ væru þeir löngu búnir að gera útaf við mig. En aðþví að ég respecta þá... Þá respecta þeir mig.
En það er svo merkilegt við Vatnaskóg. Að bara þegar maður kemur hingað, fyllist maður strax innri frið og ró og líður alltaf svo vel. Fyrir utan fermingarnámskeiðin. Þau eru heldur saurug fyrirbæri. Versti aldurinn til að koma í Vatnaskóg.
    En núna í næstu viku skelli ég mér í Unglingaflokk eða "Úllara" og ég get ekki beðið eftir því. Því ég og Benni eigum eftir að vara þarna sem "börn" og foringjarnir yfir okkur allt kallar & konur sem við höfum verið að vinna með í sumar. Við eigum því eftir að hlægja í opið geðið á þeim þegar þeir gera tilraun til að ráða eitthverju um hegðun og siði okkar. Við einfaldlega lítum á þennan flokk sem frí en ekki vistkerfi foreldra til að losna við börnin sín eða séns karlmanna til að næla sér í gellur. Eins og hugsun mín var á seinasta ári. Þó ég sjái nú alls ekkert eftir því. En þetta verður bara eitt geggjað skemmti party fyrir mig, Benna og Þorberg.
    Hróarskelda var þar síðustu helgi, og hún var.. GEGGJUÐ! já.. ég gat merkt við "hvað á að gera í lífinu"-listann, þrisvar sinnum. Ég merkti við "fara á Roskilde", "Sjá Muse" og að lokum "sjá Red Hot Chili Peppers". Ég fór í pittin á þessum tveimur hljómsveitunum og sá allt í nærmynd og með hljóðið beint í æð. Ásamt öllum þeim unaði að hlusta á þá. Drullan var bara stuð. og geðveik upplifum að mæta þarna. Og ég fer án efa á næsta ári.
   Ég elska ykkur öll og sakna ykkar. Guð geymi þá sem trúa á!
   

    Kveðja Gymmpi

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8